Staða mála í nefndinni
(1503002)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
03.03.2015 | 36. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Staða mála í nefndinni Formaður fór yfir þau mál sem eru til umfjöllunar í nefndinni og nefndin ræddi þau og næstu fundi. Samþykkt að senda 57. mál, frumvarp til laga um kosningar til Alþingis (persónukjör þvert á flokka) til umsagnar. Samþykkt að Valgerður Bjarnadóttir verði framsögumaður málsins. Samþykkt að Birgitta Jónsdóttir verði framsögur 396. máls, frumvarp til laga um upplýsinga- og sannleiksskyldu ráðherra. Kl. 9:30 kom Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður á fundinn og óskaði eftir að nefndin fengi fulltrúa Fjársýslunnar á sinn fund vegna Orra málsins svokallaða. Erindi Svifflugfélags Íslands. Tillaga formanns um að óska eftir upplýsingum frá innanríkisráðuneyti og umboðsmanni Alþingis um stöðu málsins var samþykkt. |